Sælt veri
Fólkið....
-Þessi
langa færsla er tileynkuð öllum þeim sem hafa beðið og kvartað yfir
bloggleysi mínu- 
Yes I know.... I Know...
Ekkert Blogg síðan í fyrra.. Það þýðir ekki að ég hafi legið í dái
síðan þá eða ekkert spennandi gert... Heldur Betur ekki! Ég hef
bara ekki verið í neinu Blogg stuði þessa dagana, vikurnar,
mánuðina
En ég skal reyna að æla einhverju útúr mér núna þar sem
ég hef smá tíma...
Janúar var nú frekar rólegur... Tók smá Útsölu rúnt í bænum og
verslaði mér nokkrar sætar og töff flíkur... Tilbúin fyrir
sumarið....
Annars Var ég bara í
chilli og var hægri hönd móður minnar flest kvöld.
Elda fyrir liðið og sjá um heimilið meðan hún
fór á fundi eða jafnvel lék sér í tölvunni meðan ég
eldaði
Í lok mánaðarins fór hún og systir hennar
í Surprise ferð með ömmu í tilefni af 70 ára afmæli hennar og var
ég þá sett í Full time Mother Job....
Svo höfum við systurnar
ákveðið að hafa svona Svanhildar Helgar í stað pabba helgar... Þá
tek ég börnin hennar eina helgi í mánuði og er með þau heima hjá
mér sem gefur þá systu tíma fyrir sjálfan sig og hennar Hobby...
Sem er jú bara nauðsynlegt... Og þetta er alveg yndislegur tími sem
ég eyði með börnunum... 
Í Febrúar héldum við
systurnar smá Partý og fengum pöbbann hans Helga Einars lánaðann...
Við Buðum nokkrum og vorum með súpu, brauð, bjór,og bollu og far
til Keflavíkur og tilbaka... Allt átti að ganga í sögu nema byrjaði
frekar klaufalega en endaði með alveg Brilliant kvöldi...
Við fórum svo á Froðudiskóið á Trix í Keflavík og jú jú meikuðum
það feitt þarna í froðunni... 
Þeir sem þorðu voru nú ekkert pjattaðir þarna og nánast syntu í
froðunni og já var þessi hugaði Hópur orðinn vel blautur
Eftir Froðuna fóru flest allir heim nema ég og Ingi kíktum aðeins á
Lukku Láka í Grindavík... Held að fólkinu hafi
nú bara ekkert litist á blikuna þegar ég gekk þarna inn... Bara
What the Fuck happened to you!!! Ég kom þarna inn með hárið
rennandi blautt og krullað, blaut í fæturnar og buxurnar og
bolurinn blautur líka og þá aðalega á brjóstunum....
Og ENGIN RIGNING úti!!!
Hehehe... Algjör snilld... 
Svo var jú dagur Ástarinnar
þann 14. Febrúar... Valentínusardagurinn.... Og var mér komið
virkilega á óvart þann dag. Þrátt fyrir að eiga ekki mann mér við
hlið að þá tókst mér að eiga alveg yndislegann dag... Og fékk
fallega gjöf á Konudeginum sem var 4 dögum seinna... Secret
Admirer!!!
Just FKN Love them!!! 
Svo bauð pabbi fjölskyldunni út að borða á Konudeginum.. Eins og
hann gerði í fyrra... Sæti kallinn... Heyrðu... Talandi um Ást og
fjölskyldu... Haldiði ekki að hún Íris sæta vinkona og Helgi sæti
frændi séu voða ástfangin og eru á leið með að stofna sína eigin
fjölskyldu!!! Já hún Íris Edda er Bomm.... Ég er svo hamingjusöm
þeirra vegna og bara táraðist af gleði þegar Íris loks viðurkenndi
þetta Kraftaverk!
Svo var Svanhildar Helgi
þann 23. – 25. Febrúar...
Og lékum
við okkur og höfðum Kózý partý nammi kvöld á Laugardeginum... Og
svo var bara grátur þegar átti að fara heim.... Vá hvað er
örugglega erfitt og vont fyrir hjartað að vera einstætt
foreldri.... Pabba Helgar eða mömmu helgar.... Usss... Vona að ég
endi ekki þannig... Ég vil Big Happy family!!! Minn Drauma
Eiginmaður er annaðhvort maður eins og Peter í Family Guy eða Smith
í American Dad.... So if you are out there.... I´M
HERE!!!
hehehe
Heyrðu... Svo skellti kjéllan sér á tónleikana með Incubus... Fór
með honum Inga Birni og skemmtum við okkur mjög vel og fórum á smá
djamm í bænum... Byrjuðum á A. Hansen.. Þar voru Brynjar og Steini
að trúbbast... Svo var farið niðrí bæ og vááá hvað það var
stappað... Biðraðir allsstaðar! 
En komumst við inn á Celtic Cross eftir 10 min. bið í röð. Ég
heyrði svo EDRÚ heim klukkan sex um morguninn með Inga hrjótandi
við hlið mér... Shitt... Ég var farin að slá mig utanundir áður en
ég kom að Vogunum... Var ekki að meika þetta... Hehehe.... En okkur
tókst að komast heil heim...
Svo núna þessa helgi höfum við Thelma planað svaka Game í
Reykjavík City og verður djammað frá sér allt vit... Þetta verður
bara Crazy helgi....
Okkur hlakkar mikið til!
Svo var mér boðið til London þann 15. – 18.
Febrúar... Ekki slæmt það og ég held að ég skelli mér
bara...
Anywho... Núna er kaffitíminn minn búinn og þarf ég að fara að
vinna...
Lifið lífinu FKN
lifandi og Njótið þess!!! 
P.s. Sveittar Myndir síðan úr Froðu
Partý-inu eru komnar inn
og eru þær í Albúmi 10.... Enjoy...
Rock On....